Góðir hlutir gerast hægt, tuðar fólk þegar hlutirnir ganga ekki eins hratt og þau hefðu viljað. Kílóin mjakast af og þá meina ég mjakast af eins og snígill. 5kg farin síðan ég byrjaði á fullu að æfa fyrir 3 mánuðum en ég finn að vöðvarnir eru að koma aftur. Samkvæmt markmiðiðinu mínu þá eiga önnur 5kg að vera farin af fyrir jól, verð að massa þetta.
Fékk æðislegar fréttir í morgun, tryggingafélagið mitt borgar tannaðgerðina, jibbí. Þá er ég s.s. ekki 300-400 þús kr fátækari vegna klaufaskaps.
Það er verið að bjóða okkur hús á Kjalarnesi í skiptum fyrir (helv) Auðbrekkuna. Þetta er 140fm hús með risagarði, potti og 42fm bílskúr. En staðsetningin er ekkert svakalega heillandi en maður gerir nú ýmislegt á krepputímum, allt skárra en að renna á rassgatið og verða gjaldþrota. Þegar ég minnist á flutning við Jökull byrjar táraflóð og ekki, þetta yrði nú erfitt fyrir litla kallinn minn. Æji ég veit ekki, kemur í ljós eftir helgi.
Frænkukvöld í kvöld, fjölskylduhittingur hjá okkur á morgun í hádeginu og svo indverskur og spil með sibbu, sollu og köllunum þeirra annað kvöld, nóg að gera- skemmtilegt.
Friday, October 30, 2009
Thursday, October 22, 2009
Þegar ég var að lyfta í World Class í gær þá var Páll Óskar að lyfta við hliðina á mér, Páll Magnússon að gera magaæfingar og Valdimar Örn Flyering að spjalla við helmassaðan og útúrtanaðan einkaþjálfa. Vá hvað það er greinilega hipp og cool að vera í classanum, einmitt fyrir mig ;)
Núna er ég búin að skipuleggja og ákveða nærri allar jólagjafirnar, er nefnilega farin að hlakka hrikalega til jólanna og jólalögin óma hérna á daginn hjá mér. Ummm æðis.
Ég hef stundum selt eitthvað dót og drasl á barnalandi og bara gott að segja af því. Í dag auglýsti ég rúmið hans Jökuls (Hvíttað Flexa rúm) til sölu þar sem við erum að fara að útbúa cool svefnloft fyrir hann og ekkert pláss í geymslunni til að geyma rúmið. Vá inboxið mitt sprakk, þær töpuðu sér húsmæðurnar á barnalandi. Þetta var bara eins og kapphlaup og það kom hér ung móðir (næstum því móð) og keypti rúmið á 30þús kall án þess varla að skoða það. Þetta var auðveld sala, fékk samt hálfgert samviskubit yfir því að ég keypti rúmið bara á 25þús kall þannig að ég lét hana fá dýnuna með. Greyjið Jökull þarf því að sofa í sófanum meðan við smiðum og útfærum svefnloftið hans.
Að vísu hringdi fasteignasali í okkur í dag út af húsi sem við erum mikið búin að vera að bjóða í (draumahúsið sko) og hann sagði okkur að verktakinn væri kannski farin að verða tilbúin í einhverskonar skiptidíl þar sem það haggast ekki salan á húsunum hans. Þannig að allir að krossa fingur að vona það besta. Þetta yrði að vísu örugglega pínu erfitt og samt kannski fyndið þar sem við eigum engan pening (fyrir utan það sem liggur í íbúðunum) að þá mundum við búa fátækt. Þetta er s.s. hús tilbúið til innréttinga. Kannski gæti við ein mánmót keypt okkur klósett, næsta vask, svo eldavél o.s.frv. En það eru breyttir tímar og maður hefur gott að því að vinna fyrir hlutunum (svona þegar maður fær ekki lengur lán hægri vinstri).
En núna erum við Jökull að fara að horfa á Christmas Vacation, sonurinn er komin í 4 daga vetrarfrí og ætlar sko að fá að vaka lengi.

Monday, October 19, 2009
Umm Óskar er að elda lambaprime sem hann maríneraði sjálfur, hvítlaukssteiktar kartöflur á pönnunni og gómsætt salat í skál. Börnin leika rólega saman við fæturnar á mér. Ég þreif allt hátt og lágt í dag þannig að íbúðin er skjannahrein, svo svitnaði ég svo smá í world class og dreif mig svo í búð. Ahh ef allir dagar gætu verið svona.
Dagurinn byrjaði samt ekki vel, þetta endalausa orkuleysi og höfuðverkur eru að gera mig geðveika. Ég er búin að prófa allan fjandann til að hressa mig við (og grennast) en ekkert virkar. Ég endaði á að skella í mig Parkódíni og þá loksins gat ég meikað daginn.
Bara svona að gamni þá er vert að skoða það sem ég hef prófað og eytt pening í..
-7-9-13 rándýrt stöff sem fæst í heilsuhúsinu, stútfullt af vítamínum, góðum olíum, ginseng og fleira - Virkaði ekkert..
-Metasys - Á að hressa og grenna, stútfullt af grænu tei og andoxunarefnum - Virkaði ekkert.
-Herbalife - Ágætt að taka einn og einn sjeik en virkar ekki á mig til grenningar, varð ekki hressari af sjeikunum en varð snar af herbalife teinu en endaði með að ég át svakalega þegar það hætti að virka. Fínt að nota það ef maður er að fara að taka massa hreingerningu eða rosalega æfingu - Rasberry er best.
-Sportþrenna og Heilsutvenna - Virkaði ekkert.
-Ginseng - Virkaði ekkert en varð þreyttari þegar ég hætti.
-Sunnanvindar - Svakalegur hreinsikúr, átti að hreinsa öll ógeðslegu eiturefnin og leyfarnar sem eru víst föst í ristlinum. Það átti að vera garanterað að maður missti 1-3kg við þetta. En nei, fékk að vísu svaka skitu (var stundum með áhyggjur af því hvort ég næði á klósettið). - Léttist ekki um gramm og varð ekkert orkumeiri.
-Levaxín skjaldkirtilslyf, byrjaði á því fyrir 3 vikum þar sem skjaldkirtillinn er vanvirkur og þá verður líkaminn einmitt orkulaus, safnar á sig fitu og fleira skemmtilegt. Ég hef verið á þessum lyfjum í rúmlega 3 vikur og finn engan mun og vigtin hefur ekkert lækkað.
-Ég fór á voðalega vinsælt aðhaldsnámskeið hjá JSB en varð fyrir miklu vonbrigðum og meikaði ekki einu sinni að klára það (eina jákvæða við það var að Rakel vinkona var með mér).
Ég er búin að eyða fullt af peningum í eitthvað drasl sem virkar ekki sjitt en held samt ótrauð áfram og næst á dagskrá er að prófa Jen Fe klikkuð ha ? ;)
p.s. Jú það er eitt sem hefur virkað fyrir mig en það var Ripped Fuel með efedríni , það var æðis, (var á því þegar ég var rúmlega tvítug en þá var ekki vitað hvað það væri hættulegt) ég varð alveg mjó meðan ég var á því.. Spurning um að reyna að redda svoleiðis aftur ?!!!

Thursday, October 15, 2009
Klaufaskapur
Ég er rosalegur klunni, alveg stórmerkilegt að ég sé enn á lífi í raun. Ég er búin að brjóta og bráka mörg bein, snúa og teygja upp á liðbönd, sinar og fleira. Búin að rotast oftar en 5 sinnum og fengið svo slæman heilahristing að ég var í heilan dag á spítala þar sem það leið yfir mig aftur og aftur. þessi klunnaskapur fer hrikalega í taugarnar á mér því fyrir utan það þá er ég með augnsjúkdóm sem hefur verið þurftafrekar og vesen og auk þess líka með háan blóðþrýsting sem hefur skemmt fyrir mér meðgöngurnar (eða allavega helmingin).
Jæja ekki nóg með þetta heldur þá er ég farin að brjóta í mér tennurnar. Fyrir 3 árum braut ég eina tönn sem var nú frekar sjokkerandi og ég þurfti að fá brú og vesen. Reikningurinn var 250þús kall en ég var það vel tryggð að ég fékk hverja einustu krónu borgaða (er hjá TM).
Jæja um daginn braut ég aðra tönn og í þetta sinn var það framtönn (tönn nr 2 horft vinstri megin). Ég var að gera graut handa Heklu, skildi eftir opna skápahurð og bang, skallaði skápinn og tönninn smallaðist, alveg upp að rót. Ég trompaðist, grenjaði úr mér augun og var bara miður mín. Því fyrir utan það hvað þetta er mikið vesen og fleira þá er þetta bara svo drulluvont (tannlæknar eru af hinu illa).
Tannlæknirinn skoðaði mig, sagði ég þyrfti Implant og þetta væri svona 6-7 mánaða prócess. Þetta kostaði yfirleitt á bilinu 300-400þús en kannski fengi ég þetta tryggt..
Well staðan í dag er að Tryggingarfélagið er enn að skoða þetta (kannski af því þetta er tönn númer 2, farið að líta út eins og heimilisofbeldi), ég er búin að borga 75þús kall hingað til og tannlæknirinn sagði mér að fyrir aðgerðina sem ég ætti að fara í á mánudaginn þyrfti ég að borga 165þús.
Ég á engan pening, kannski þarf ég bara alltaf að vera tannlaus, hva lít að vísu út eins og rónakelling en meina hell..
Hvernig get ég hætt að vera svona ??

Wednesday, October 14, 2009
Ég virðist ekki vera með heila þessa dagana, gleymi öllu, dett um allt og er bara í ruglinu. Í kvöld er ég búin að bjóða mömmu og co í Sushi sem ég ætla að búa til. Allt vel skipulagt og ég aldrei þessu vant á góðum tíma, nei þá sé ég að ég hef gleymt sushihrísgrjónunum í búðinni. Óskar sem er svo viljugur í að vesenast fyrir mig (lovlí) er því að ná í grjónin meðan ég skrifa..
Annars þá gerði gaurinn í Fylgiskum bara grín að mér. Ég kom þarna inn og þá kemur hávaxinn myndarlegur maður til að afgreiða mig. Svona var þetta í stuttu máli:
Íris: Eru þið bara með svona fiskirétti en ekki svona fisk eins og t.d. í sushi?
Gaur: Jú líttu hér til hliðar..
Íris: Já djók haha fullt af fiski hér.
Íris: Áttu enga ferskan túnfisk?
Gaur: Hahaha nei það er sko 2009 í dag en ég á hann frosin ef þú vilt?
Íris: Já endilega
Gaur: Kíló af túnfisknum er á tæpan 9þús kall..
Íris: Já nei haha þá kaupi ég bara lax og smá krabbakjöt (fátæka gellan sko).
Íris: Heyrðu veistu svo nokkuð hvar ég fæ sushi hrísgrjón og þannig hluti?
Gaur: Já það er í hillunni fyrir aftan þig...
Jei gaurinn hefur líklegast haldið að ég væri vangefin og þegar ég tók eftir að ég gleymdi svo hrísgrjónum þá var bara ekki séns að ég færi að ná í þau. Hrezzt.
Að öðru þá var ég að sækja um frystingu á íbúðarlánunum mínum og þetta hefur sko verið hrikalega leiðinlegt og langt ferli. Svo þegar allt er tilbúið þá tilkynnir þjónustufulltrúin minn mér að ég þurfi að skila inn Vísakortinu og segja upp öllum boðgreiðslum. Ég fékk vægt áfall og fann hvernig niðurlægjistilfinningin hristi mig alveg. En ég er sko bara með Happdrætti háskólans og smá Víkinga lottó á vísanu ? En nei ég þarf að segja því upp og af því ég er bara þannig þá er það svo típíst að ég sem hef haft sömu tölur í 3 ár og ekki unnið tíkall í Víkingalottóinu, hef núna svo miklar og sveittar áhyggjur yfir því að það komi mörg hundruð milljóna vinníngur á númer mitt, bara t.d. í næstu viku...

Tuesday, October 13, 2009
Gleymt lykilorð
Vá hvað það er langt síðan ég hef röflað - mundi ekki einu sinni lykilorðið..
Ég hef alltaf haft rosalega mikla tjáningaþörf, tala t.d. alltof mikið. Ég ætla að byrja að blogga smá aftur, svona svo ég geti minnkað talið og tuðið við mína nánustu.
Það gengur allt alveg bærilega hjá okkur hérna í Selvaðinu þrátt fyrir peningaleysi sem jaðrar við fátækramörk, of litla íbúð og fleiri svona vandamál sem eru í raun bara tengd þessu veraldlega. Við fjölskyldan eru samt alltaf jafn falleg, heilbrigð og skemmtileg og það er nú fyrir öllu (þó maður detti alveg í neikvæðnina á peninga,skuldum,fitu og fleiri "smá" vandamálum.
Jökull stendur sig sjúklega vel í skólanum þar sem hann er að brillera á námsefninu og fer létt með það. Úlfar skemmtir sér konunglega á leikskólanum Heiðarborg og svo elskar hann að vera heima (já algjör heimalingur þessi elska). Hekla er stór og bústin alveg að verða 9 mánaða, hún getur setið, klappað og sagt mamma og pabbi. Þessi börn mín eru svo yndisleg að ég mun örugglega þurfa að tala fullt um þau og þá sérstaklega e-h montsögur (fínt til að leyfa þeim að lesa seinna).
Pólitík er ekki mikið fyrir mér núna, er næstum hætt að nenna að fylgjast með fréttum og gangi mála. Verð svo hrikalega svekkt og pirruð að ég held að mín vegna og annara að best sé að taka þessu bara svona létt (s.s. ekki kafa of djúpt í þessa kreppu).
Jæja myndarlegi naglinn minn var að labba inn um dyrunum og ég verð að knúsa hann aðeins.
Later...

Monday, March 23, 2009
Já einmitt, eins og Fríða spurði hér í kommentinu þá hef ég ekki bloggað síðan orbitekið kom í hús. Ég hef verið svo dugleg á Orbitekkinu að ég hef nefnilega alls ekki getað bloggað og er orðin 50kg, jei - I WISH .. Hehe
Nei ég get nú ekki sagt að ég sé gróin við Orbitekkið en tek nokkra spretti svona á milli barnauppeldis, þvotta og fleira. En það er lítill frítími. Litla Hekla hefur aðeins verið að gera okkur foreldrana gráhærð með grátaríum en er öll að koma til og vonumst við til þess að við 3 mánaða aldurinn verði þessi magaloftkveisa farin.
Ég er byrjuð í Pilates með Kollu, Ernu og Rakel og líst bara rosalega vel á. Tek litlu skvísuna mína með. Síðast þá fórum við á Maður lifandi eftir tímann og Hekla grét svo hátt og mikið að það kom starfsmaður og sp okkur hvort við værum ekki til i að fara inn í fundarherbergið og borða þar, úps. En það var fínt að fara inn í fundarherbergið en það sem var ekki eins fínt var maturinn. Ég var í svona kortér að reyna að finna eitthvað sem mig langaði í, endaði á að fá mér bara salatbarinn og bleehann var vægast sagt óspennandi. En maður fitnar allavega ekki á að borða þar..
Óskar er að fara út til Ísraels á föstudaginn og verður í viku - 10 daga. Mér er búið að kvíða svo fyrir því að hann fari frá okkur að ég held að ég verði bara fegin þegar það kemur loksins að þessu. Ég fæ tár í augun og kökk í hálsinn af áhyggjum af sæta kallinum mínum en hann er að fara setja lappir undir palestínumenn. Mikið verð ég rosalega happy þegar ég fæ hann aftur heim.
Að eiga svona tvö lítil börn er mikil vinna og ég viðurkennda það fyrir mér um daginn að því miður þá gæti ég ekki verið mikið ein með þau. Óskar varð veikur og ég var með þau þrjú og Jökull er auðvita orðin svo stór að hann hjálpar smá til en hin krílin eru bara úff fyrir 4 hendur. Þess vegna vona ég að allir verði duglegir að heimsækja mig og hjálpa til þegar Óskar er úti, svo ég endi ekki sitjandi grenjandi á gólfinu hehe..
Jæja Hekla kallar ..

Subscribe to:
Posts (Atom)